Hvað viltu gera?

Þorsteinn Einarsson

Þú ert með eina lykilinn í vasanum.
Og þú ein getur hleypt mér út úr bílskúrnum.
Og hvað viltu gera?
Hvar á ég að vera?

Þú stjórnar þessu sjóvi með fingrunum.
Segðu bara orðin með vörunum.
Og ég mun hlera -
hvað þú ert að segja.

Ég nenni ekki að dvelja í smáatriðunum.
Heldur hafa yfirsýn á heildarmyndunum.
Og opinbera -
almennilega.

Og hvað viltu gera?
Og hvað viltu gera?
Hvað viltu gera?

Ég hef kannað þessa sýslu þvera og endilanga.
Út á hvert sker og alla tanga.
Loksins fundið það -
sem ég leitaði að.

Einmitt þessa tilfinningu hef ég reynt að fanga.
Og núna finnst mér eins og að það muni ganga.

Ég held ég megi það.
Ég ætla að leyfa mér það.

Já það vil ég gera.
Það vil ég gera.
Það vil ég gera.

Wissenswertes über das Lied Hvað viltu gera? von Hjálmar

Wer hat das Lied “Hvað viltu gera?” von Hjálmar komponiert?
Das Lied “Hvað viltu gera?” von Hjálmar wurde von Þorsteinn Einarsson komponiert.

Beliebteste Lieder von Hjálmar

Andere Künstler von Reggae music