Niðavellir

Baldur Ragnarsson / Björgvin Sigurðsson / Gunnar Ben / Jón Geir Jóhannsson / Snæbjörn Ragnarsson / Þráinn Árni Baldvinsson

Niðavellir, náhvítur máninn skín
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn
Sindradætur, synir og börnin öll

vetrarnætur, verma þau klettafjöll

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa
Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa

Galdrastafir, grafnir í stóran stein
dvergagrafir, dysjar og gömul bein
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal
Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa
Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa

Trónir á mergi tinnugler
tindar úr bergi háir
Sindri og Hergill halla sér
hér sofa dvergar gráir

Heyr, mín kæra hefðarfrú
hér er gott að sofa
Á sig taka náðir nú
niðahjón og börnin þrjú

Þegar heyrist þrumugnýr
Þór við skulum lofa
Okkur geymir hellir hlýr
hér er gott að sofa

Náinn syngur næturljóð
núna sefur dvergaþjóð

Wissenswertes über das Lied Niðavellir von Skálmöld

Wann wurde das Lied “Niðavellir” von Skálmöld veröffentlicht?
Das Lied Niðavellir wurde im Jahr 2016, auf dem Album “Vögguvísur Yggdrasils” veröffentlicht.
Wer hat das Lied “Niðavellir” von Skálmöld komponiert?
Das Lied “Niðavellir” von Skálmöld wurde von Baldur Ragnarsson, Björgvin Sigurðsson, Gunnar Ben, Jón Geir Jóhannsson, Snæbjörn Ragnarsson und Þráinn Árni Baldvinsson komponiert.

Beliebteste Lieder von Skálmöld

Andere Künstler von