Bréfið

Ég skrifa bréf þótt skaki vindar hreysi
Og skrifta fyrir þér
Ég tíunda mitt eigið auðnuleysi
Og allt sem að miður fer

Því hafin yfir hversdagsleikann gráa
Ert þú hjartans vina mín
Ég ljósið slekk og langt í fjarskann bláa
Leitar hugurinn til þín

Svo ber ég eld að bréfkorninu mínu
Þá batnar vistin hér
Því fölur loginn fyllist brosi þínu
Sem að fyrirgefur mér

Og þannig brúar þessi litla skíma
Þagnarinnar hyl
Þú huldumey sem handan rúms og tíma
Hefðir getað verið til

Svo ber ég eld að bréfkorninu mínu
Þá batnar vistin hér
Því fölur loginn fyllist brosi þínu
Sem að fyrirgefur mér

Og þannig brúar þessi litla skíma
Þagnarinnar hyl
Þú huldumey sem handan rúms og tíma
Hefðir getað verið til

Wissenswertes über das Lied Bréfið von Hjálmar

Wann wurde das Lied “Bréfið” von Hjálmar veröffentlicht?
Das Lied Bréfið wurde im Jahr 2004, auf dem Album “Hljóðlega af stað” veröffentlicht.

Beliebteste Lieder von Hjálmar

Andere Künstler von Reggae music