Svarið

Greið er leiðin, lindin tær
Ógnin er farin, vatnið þvær
Hvítþvegið hliðið, dagur nýr
Hér er kveðið, óttinn flýr

Í hyldýpið sting mér
Ólgandi hraunið, eilífðarhver

Kannski þú spyrjir
En svarið það er..

Frá örófi alda, allt sem er
Er til handa mér og þér
Fjallið að fjöru skríður
Eldur í jörðu bíður

Ef að því kemur, syndaflóð
Mannfólkið sefur. Heyr þinn óð
Og kannski þú spyrjir
En svarið það er...

Svarið er innra með þér

Wissenswertes über das Lied Svarið von Hjálmar

Wann wurde das Lied “Svarið” von Hjálmar veröffentlicht?
Das Lied Svarið wurde im Jahr 2004, auf dem Album “Hljóðlega af stað” veröffentlicht.

Beliebteste Lieder von Hjálmar

Andere Künstler von Reggae music